Category:Verð
Verð hjá söluaðilum
Alltaf drjúgt um að gististaðir fái bókanir á öðrum verðum en grunnverðum sem eru sett inn í Bemar. Þetta stafar alltaf af boðnum afsláttum eins og td. Booking og Expedia nota mikið í sínum sölukerfum. Dæmi um að td. tilboð hjá Booking og Expedia virkist ef vefpóstum þar sem væntanleg tilboð á söluvef er kynnt sé ekki svarað (þátttöku hafnað).
Oft erfitt að finna hvar þetta er sett inn og hvernig söluaðilar reikna þetta út, en þetta þarf að ræða við viðkomandi söluaðila, Bemar hefur engan aðgang að sölukerfum nema Bemar eigin bókunarkerfi fyrir beinar bókanir. Allir söluaðilar fá sama grunnverð og sett eru inn í Bemar en eru að öðru leyti með sitt eigið sölukerfi og afsláttarkerfi.
Alltaf hægt að bera saman grunnverð í Bemar og stjórnborði söluaðila, verðin eru eins en hvað er svo boðið í afsláttum hjá öðrum söluaðilum er ekkert sem Bemar getur ráðgast með.
Grunnverð eru eins í öllum stjórnborðum en þegar endanleg verð eru skoðuð hjá td. Booking og Expedia bókunarvélum þarf að gæta þess að ef þú ert td. innskráður gestur þá geta afslættir reiknast sjálfkrafa, þetta er hægt að skoða með öðrum netskoðara og gæta þess að vera ekki innskráður hjá Booking eða Expedia.
Bókanir frá söluaðilum
Hver söluaðili setur sínar bókanir inn í Bemar um API netið og hefur hver söluaðili vald á sínum bókunum og setur inn td. afbókanir og annað sem tengist viðkomandi sölukerfi.
Lagerstaða hjá söluaðilum
Lagerstaða fer frá Bemar til söluaðila í nánast rauntíma þegar breytingar verða líkt og með verðbreytingar. Stöku tafir verða sem geta tekið nokkrar mínútur td. þegar flæðilínan nær til endursöluaðila hjá Booking og Expedia.
This category currently contains no pages or media.